Þriðjudagur 24. desember, 2024
2.8 C
Reykjavik

Líkurnar á bata voru ekki Svavari í hag „Tók það ekki í mál að ég myndi ekki lifa veikindin af“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Svavar Viðarsson veiktist illa fyrir ári síðan en sigraðist ekki aðeins á veikindunum heldur tók upp heila plötu.

Blóð, sviti og tár

Svavar Viðarsson fékk blóðtappa í heila og greindist með hjartagalla fyrir um ári síðan og voru honum ekki gefnar miklar líkur á bata.

„Ég tók það ekki í mál að ég myndi ekki lifa veikindin af eða festast í þessu ástandi.
Ég leyfði mér ekki að hugsa út í það neikvæða sem gæti gerst heldur einblýndi ég á það jákvæða í lífinu og hvað ég hlakkaði til að gera þegar ég væri búinn að ná mér, sem var að taka upp og gefa út plötuna mína Engin lengur veit.“

Það má svo sannarlega segja að sterkt hugarfar hans hafi komið honum í gegnum veikindin á þennan máta þar sem Svavar hafði náð fullum bata skömmu síðar og eltir nú ástríðu sína í tónlist og útivist.

Platan hans Engin lengur veit er sjö laga, þýðingarmikil, falleg og djúp plata sem lagt var í blóð, svita og tár. Öll lögin eru þægileg, grípandi og vel útsett og ættu því allir að finna eitthvað að tengja við á plötunni.

- Auglýsing -

Nú getur þú bæði fengið diskinn heimsendan eða hlaðið honum í tölvuna/símann. Hægt er að kaupa hann hér.

Upptökur fóru fram í desember 2021 – apríl 2022 hjá Nice Productions, apríl 2021 hjá Studio Pros og 2020 hjá Studio Leyni.

- Auglýsing -

Hljómsveitin Nostal sá um hljóðfæraleik að mestu en aukalega komu að verkefninu þau Rakel Pálsdóttir (söngur og raddir), Tómas Jónsson (píanó), Sigurður Bjarki Gunnarsson (selló), Matthías Stefánsson (fiðla/víóla) og Vignir S. Vigfússon (kassagítar).

Hljómsveitin Nostal:

Söngur: Bjarni Ómar Haraldsson

Trommur: Ragnar Z Guðjónsson

Bassi: Svavar H. Viðarsson

Rafgítar: Baldur Ketilsson

Rafgítar: Þröstur Leósson

Hljómborð: Jón Karl Ólafsson

Upptökustjórn og útsetningar: Vignir S. Vigfússon

Mastering: Addi 800

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -