Áhrifavaldurinn og sjónvarpsstjarnan Linda Ben er nú stödd á Kanarí í góðu fríi eftir að hafa verið á kafi í verkefnum á síðasta ári. Meðal þess sem hún gerði var að gefa út eigið kökumix og sjónvarpsþátt á Stöð 2. Geri aðrir betur og verður forvitnilegt að sjá hvað hún gerir á nýju ári.
Linda er þó ekki ein í ferðinni en með henni í för er Ragnar Einarsson, eiginmaður Lindu. Hann starfar sem forstöðumaður færsluhirðingar Landsbankans og hefur tekist að byggja upp þann hluta fyrirtæksins hratt og vel.
Linda deildi með fylgjendum sínum á Instagram myndum úr ferðinni hingað til og ljóst er að hjónin njóta sín vel í sólinni.