Listmálarinn og kennarinn Torfi Jónsson, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 26. ágúst síðastliðinn. Hann var 89 ára.
Það var á Eyrarbakka 2. apríl árið 1935 sem Torfi fæddist en foreldar hans voru Hanna Alvilda Ingileif Helgason, fædd 1910, dáin 1999, og Jón S. Helgason stórkaupmaður, fæddur 1903, dáinn 1976. Systkini Torfa eru Helgi V., dáinn 2021, Hallgrímur G. og Sigurveig.
Árið 1954 útskrifaðist Torfi úr Verzlunarskóla Íslands en hann sótti einnig í kjölfarið ýmis námskeið í Handíðaskólanum en Torfi hafði málað myndir og teiknað frá barnæsku, auk þess að starf við rekstur foreldra sinna. Þá stundaði hann nám við Listaháskólann í Hamborg 1958-61 í grafískri hönnun en þar kynntist hann og tileinkaði sér skrautskrift, leturfræði og bókagerð. Þegar Torfi kom aftur heim stofnaði hann hönnunarstofu í Reykjavík sem hann rak til ársins 1977.
Í fjölmörg ár kenndi Torfi hönnun við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og var þar skólastjóri frá 1982 til 1986. Seinna kenndi hann við Iðnskólann þar til hann fór á eftirlaun. Að auki starfaði Torfi sem bókahönnuður.
Fram kemur í andlátsfrétt Mbl.is haslaði Torfi snemma á ferlinum sér völl á erlendis með þátttöku í fjölda samsýninga og vann hann til verðlauna fyrir verk sín. Þá var hann eftirsóttur skrautskriftarkennari, bæði á Íslandi og í Þýskalandi þar sem hann kenndi námskeið í ein 13 ár. Torfi málaði fjölmargar stórar vatnslitamyndir úti í náttúrunni víða um land en fyrstu einkasýninguna hélt hann á Loftinu á Skólavörðustíg árið 1965. Eftir það hélt hann margar annarra sýninga, þá síðustu á Hrafnistu í Hafnarfirði árið 2018.
Torfi lætur eftir sig fimm börn, 13, barnabörn og 14 barnabarnabörn. Sonur hans og Steinunnar Jónsdóttur er Hörður Ingi, húsasmíðameistari, fæddur 1956. Með fyrri eiginkonu, Elsu Heike Jóakimsdóttur Hartmann, eignaðist hann Svandísi, hágreiðslumeistara, fædd 1960, Kristínu, kennara, listmálara og útstillingahönnuð, fædd 1961, og Jóhann Ludwig, listamann, fæddur 1965. Með seinni eiginkonu sinni, Jónínu Helgu Gísladóttur píanóleikara, dáin 2009, eignaðist hann Guðrúnu Ingu, lögfræðing, fædd 1982.
Útför Torfa fer fram frá Fossvogskirkju 10. september klukkan 13.