Fimmtudagur 31. október, 2024
1.7 C
Reykjavik

Logi lýsir yfir sakleysi sínu: „Ég hef alla mína ævi haft andstyggð á hvers kyns ofbeldi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson lýsir yfir sakleysi sínu vegna ásakana um kynferðislega áreitni. Hann segir ekkert vera fjær sér en „að þröngva annarri manneskju til kynferðislegra athafna“.

Logi Bergmann er sakaður um kynferðislegt áreiti og misnotkun í garð Vítalíu Lazareva. Mál hennar hefur vakið gríðarlega athygli eftir að Mannlíf birti frásagnir hennar af samfélagsmiðlun þar sem Logi, Arnar Grant, Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson voru sakaðir um kynferðislegt áreiti og misnotkun í hennar garð.

Vítalía var í leynilegu ástarsambandi við Arnar sem að hennar sögn nánast falbauð hana vinum sínum. Hún lýsti ferð í sumarbústað þar sem hún og fjórir menn voru nakin í heitum potti og mörk hennar voru ekki virt.

Þá sagði hún frá golfferð þar sem þekktur fjölmiðlamaður fékk leyfi ástmannsins til að misbjóða henni. Hún birti nöfn meintra gerenda og samskipti við þá á samfélagsmiðlum. Vítalía kom síðan fram í hlaðvarpsviðtali hjá Eddu Falak þar sem hún sagði frá málum í smáatriðum. Meðal annars lýsti hún því þegar ástmaður hennar, harðgiftur, bauð vini sínum, þjóðþekktum fjölmiðlamanni, sem hafði komið óvænt að þeim í ástarleik, á hóteli í Borgarfirði, aðgang að henni.

„Ég horfi framan í hann þegar vinur hans er að fara niður á mig og ég á að vera að fara niður á hann. Ég horfi í augun á honum, ég er farin að gráta og segi honum að ég vil þetta ekki. Hann segir við mig að þetta verði allt í lagi því hann er með mér,“ sagði Vítalía um atvikið á hótelherberginu.

Sjá einnig:

- Auglýsing -

 

Vítalía benti á Loga Bergmann sem hinn þekkta fjölmiðlamanna.

- Auglýsing -

Logi birti í kvöld yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni og tekur þar fram að hann ætli ekki að tjá sig frekar um málið.

„Ég er saklaus af þeim sökum sem á mig hafa verið bornar undanfarna daga. Ég hef alla mína ævi haft andstyggð á hvers kyns ofbeldi, staðið með fórnarlömbum þess og stutt baráttu þeirra í gegnum tíðina. Ekkert er fjær mér en að þröngva annarri manneskju til kynferðislegra athafna. Ég er hins vegar sekur um að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks með því að hafa farið inn í herbergi sem ég átti ekki að fara inn í. Það var taktlaust og heimskulegt og ég hef þegar tjáð viðkomandi að ég taki ábyrgð á því og mér þyki það leitt,“ segir Logi í yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni.

Allir hafa mennirnir, Logi þar á meðal, tilkynnt um að þeir ætli að stíga til hliðar í störfum sínum vegna málsins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -