Erlendur ferðamaður leitaði til lögreglu í gær og tilkynnti þjófnað á skartripum sem geymdir voru á hótelherbergi ferðamannsins meðan hann brá sér í dagsferð um Ísland. Sagðist hann hafa verið að pakka fyrir heimför þegar hann áttaði sig á því að skartgripirnir voru hvergi sjáanlegir. Í Hafnarfirði kom maður með hund á lögreglustöðina. Sagðist hann hafa fundið hundinn á hlaupum en dýrið var ómerkt. Lögregla flutti hundinn til Dýraþjónustu Reykjavíkur í kjölfarið þar sem reynt verður að hafa upp á eigendum hans.
Í Kópavogi þurfti lögregla að hafa afskipti af manni sem var í annarlegu ástandi á bílastæði. Maðurinn var vistaður í fangaklefa sökum ástands. Pirraður íbúi kvartaði undan hávaða frá körfuboltavelli en lætin trufluðu viðkomandi svo mikið að hann ákvað að hringja á lögreglu. Þegar laganna verðir mættu á vettvang ræddu þeir við körfuboltamennina sem lofuðu að halda hrópum og köllum í lágmarki. Þá var skemmdarvargur á ferð í gærkvöldi sem olli skemmdum á hurð að séreign í fjölbýlishúsi. Lögregla veit hver var þar á ferð en aðilinn hafði látið sig hverfa áður en lögregla kom á vettvang.