Lögregla handtók karlmann um klukkan 14 í gær fyrir að aka bifreið undir áhrifum fíkniefna. Í bílnum með manninum var barn og hefur barnavernd verið gert viðvart. Þá kemur ekki fram í dagbók lögreglu hvort barnið sé faðir eða ættingi barnsins sem var farþegi.
Fyrr um daginn ók drukkinn ökumaður aftan á annan bíl við Bauhaus. Sem betur fer slasaðist enginn en bílarnir skemmdust töluvert mikið. Ökumaðurinn var handtekinn á vettvangi og ekið niður á lögreglustöð þar sem hann fór í skýrslutöku. Var hann látinn laus síðar um daginn. Samkvæmt dagbók lögreglu var sumardagurinn fyrsti að öðru leyti nokkuð rólegur. Þá sinnti lögregla einnig reglubundnu umferðareftirliti.