Starfsmaður hótels í miðborginni kallaði til lögreglu í gærkvöldi þegar maður í annarlegu ástandi reyndi að greiða fyrir gistingu án árangurs. Hótel starfsmaðurinn óskaði eftir því að manninum yrði vísað á dyr en þegar lögregla kom á vettvang og ræddi við manninn komst hún að þvi að hann átti ekki í nein hús að vernda. Lögreglan mat það svo að aðilinn gæti ekki eytt nóttinni úti enda mikill kuldi og blástur og fékk hann því að gista í fangaklefa lögreglu.
Síðar um kvöldið handtók lögregla ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum vímuefna. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem tekið var úr honum blóðsýni. Í Kópavogi hafði íbúi samband við lögreglu og sagðist hafa séð mann með vasaljós ganga um hverfið. Lögregla tók bíltúr um hverfið en fann engann sem passaði við lýsingu mannsins. Þá stöðvaði lögregla tvo aðra ökumenn sem báðir eru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Sá þriðji var handtekinn fyrir að tala í farsíma við akstur.