- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Tomasz Miastkowski, 46 ára, frá Póllandi, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Póllands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.
Tomasz er ekki talinn hættulegur. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 112. Tomasz er jafnframt hvattur til að gefa sig fram hjá lögreglu.