Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innbrotum og þjófnuðum í umdæminu segir í tilkynningu frá lögreglunni. Um er að ræða þjófnaði á nokkur hundruð kílóum af kjötvörum, fatnaði, raftækjum o.fl., en verðmæti þess hleypur á milljónum króna. Mikið af þýfinu fannst á dvalarstað mannsins, en nú er unnið að því að koma hlutunum aftur í réttar hendur og mun það taka einhvern tíma.
Lögreglan hvetur fólk að hafa samband nafnlaust í 800 5005 ef það vill koma fram með upplýsingar upp skipulagða brotastarfsemi.