Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti fyrr í dag eftir Friðfinni Frey Kristinssyni, sem er 42 ára. Hann er sonur Séra Kristins Ágústs Friðfinnssonar, en hann segir í viðtalið við Fréttablaðið: „Við bíðum milli vonar og ótta.“ Séra Kristinn hrósar störfum lögreglunnar sérstaklega.
Síðast er vitað um ferðir Friðfinns síðastliðið fimmtudagskvöldið, þann 10. nóvember, þegar hann fór frá Kugguvogi í Reykjavík. Friðfinnur var þá klæddur í gráa peysu með BOSS merki á og gráar joggingbuxur. Mynd af honum má sjá hér fyrir neðan.
Í tilkynningu frá lögreglu segir: „Hann er 182 cm á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg. Íbúar í hverfinu eru beðnir um að skoða nærumhverfi sitt s.s. geymslur, stigaganga og garðskúra. Þá eru þeir sem eru í forsvari fyrir auðu húsnæði í hverfinu beðnir um að skoða slíka staði. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.“