Þrír ungir strákar hentu klaka af göngubrú yfir Miklubraut á sunnudag og brutu framrúðu á bíl sem kom keyrandi. Lögreglan segir að um „stórhættulegt athæfi“ sé um að ræða.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu þar sem segir frá afar hættulegu athæfi ungra drengja síðastliðinn sunnudag. Drengirnir, sem samkvæmt lögreglunni eru um níu til ellefu ára gamlir, köstuðu klaka af göngubrú yfir Miklubraut í Reykjavík en klakinn lenti á framrúðu bifreiðar og brotnaði rúðan. Ökumaðurinn slapp ómeiddur en var illa brugðið.
Í tilkynningu lögreglunnar biður hún um þá sem hafa upplýsingar um málið, að hafa samband. Þá biður lögreglan foreldra um að brýna fyrir börnum sínum þá gríðarlegu hættu sem skapast af svona hegðun.
Tilkynninguna má lesa hér: