Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Evu Maríu Guðbjartsdóttur, 37 ára, en ekkert hefur spurst til hennar síðan 26. desember síðastliðinn þegar hún fór frá dvalarstað sínum í Lækjarseli í Reykjavík.
Eva María var klædd í svartar Nike buxur, svarta peysu, svarta 66°N úlpu og með svartan Nike bakpoka. Eva er ljóshærð með næstum aflitað hvítt milli sítt hár, um 170-174 cm á hæð og frekar grannvaxin. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Evu Maríu, eða vita hvar hún er niðurkomin, eru vinsamlegast beðnir um að hafa strax samband við lögregluna í síma 112