- Auglýsing -
Lögreglan á Norðurlandi vestra lýsir eftir Soffíu Pétursdóttur fæddri 1941. Soffía fór að heiman frá sér á Laugarbakka í Húnaþingi vestra í nótt eða í gærkvöldi. Soffía er með heilabilun. Hafin er leit að Soffíu. Þeir sem kunna að geta gefið upplýsingar um ferðir Soffíu eru vinsamlega beðnir um að láta lögregluna á Norðurlandi vestra vita. Jafnframt eru íbúar í nágrenninu beðnir um að skoða húsnæði sín og nærumhverfi hvort að Soffía gæti nokkuð leynst þar.
Uppfært – Soffía er fundin.