- Auglýsing -
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú líkamsárás gegn konu á Selfossi aðfaranótt 21. júní síðastliðinn.
Samkvæmt frétt Sunnlenska.is leitar lögreglan að vitnum að líkamsárás sem framin var gegn konu við undirgöngin undir Eyraveg við Hagatorg á Selfossi á milli 5 og 5:30 að morgni miðvikudagsins 21. júní.
Hafi einhver orðið vitni að þessari árás er viðkomandi vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögregluna í gegnum netfangið [email protected].