Lögreglan og sjúkrabíll er við Litla-Hraun vegna atviks sem kom upp í dag en Vísir greinir frá. Þetta staðfesti Páll Winkel fangelsismálastjóri.
„Ég get ekki tjáð mig um þetta strax. Lögregla er á vettvangi vegna atviks á Litla-Hrauni sem er verið að bregðast við. En við getum ekki gefið upp frekari upplýsingar,“ sagði Páll við Vísi. Þá greinir mbl.is frá því að átök milli fanga hafi brotist út.
Lögreglan á Suðurlandi hefur ekkert viljað tjá sig um atvikið en það á að hafa gerst milli 13 og 14 í dag. Send verður út tilkynning síðar í dag um málið að sögn lögreglu.