Skemmdir voru unnar á um tíu bifreiðum á Seltjarnarnesi um miðjan síðasta mánuð, en þær voru allar kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Austurströnd þegar verknaðurinn átti sér stað en greint er frá þessu í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar var á ferðinni skemmdarvargur sem rispaði allar bifreiðarnar með einhvers konar áhaldi – svo mikið tjón hlaust af. Svo virðist sem hinn óprúttni aðili hafi verið á ferðinni oftar en einu sinni, en bifreiðarnar, sem urðu fyrir barðinu á skemmdarvargnum, voru við Austurströnd 2-10.
Þau sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]