Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar í tilkynningu við SMS svikaskilaboðum þar sem hlekkur fylgir sem fólk er hvatt til að ýta á.
Þegar ýtt er á hlekkinn er fólk eftir atvikum beðið um að slá inn farsímanúmer og velja viðskiptabanka. Í kjölfarið kemur melding í farsíma þar sem beðið er um staðfestingu í gegnum rafræn auðkenni. Með þessum hætti er fólk að gefa óprúttnum aðilum aðgang að netbanka sínum. Þessir aðilar taka yfir netbanka fólks og tæma reikningana.
Undir engum kringumstæðum senda bankar á Íslandi hlekki til að skrá sig inn á netbanka. Lögregla hvetur fólk til þess að vera á varðbergi gagnvart þessum svikum sem oftar en ekki eiga sér stað um helgi eða utan opnunartíma bankanna.
Lögreglan vekur jafnframt athygli á nýlegum greinum og fréttum þessu tengdu:
https://www.landsbankinn.is/frettir/2023/08/31/vorum-vid-svikatilraunum