Þriðjudagur 8. október, 2024
4.9 C
Reykjavik

Lögreglumenn skutu föðurmorðingja til bana – MYNDBAND

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglumenn í Plano í Illinois í Bandaríkjunum skutu mann í september

Lögreglumennirnir voru að bregðast við símtali frá Russell Novak en hann hafði hringt í neyðarlínuna til að tilkynna að byssur í hans eigu væru horfnar og að hefði einhver brotist inn. Á upptöku af símtalinu heyrðist Novak svo öskra og hávær hvellur heyrðist í kjölfarið.

Þegar lögreglumenn mættu á staðinn var hinn grunaði að bakka úr bílskúr Novak og hófst eltingarleikur um götur bæjarins. Á endanum stöðvaði maðurinn bílinn og steig út úr honum með haglabyssu og að sögn lögreglu skaut hann að minnsta kosti einu sinni á lögreglumenn. Þeir svöruðu með því að skjóta 12 sinnum að manninum og hæfðu þeir þann grunaða. Farið var með hann á sjúkrahús og var hann svo í kjölfarið úrskurðaður látinn. Greint hefur verið frá því að þetta hafi verið Nicholas Novak, sonur Russell, og var hann 36 ára gamall.

Russell Novak lést einnig af sárum sínum en hann var 70 ára gamall.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -