Úrslit símakosninga í undanúrslitum Söngvakeppni sjónvarpsins 2024 hafa loks verið senda á fjölmiðla.
Mannlíf var varla búið að senda út frétt um tafir á birtingu úrslita á símakosningunni í undanúrslitum Söngvakeppninnar 2024, en að Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdarstjóri keppninnar, sendi tölurnar á fjölmiðla.
Fjórða mars RÚV niðurstöður kosningar frá úrslitakvöldi Söngvakeppinnar. Þar kom fram að lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar sigraði keppnina með 100.835 atkvæðum. Lagið Wild West varð í 2. sæti með 97.495 atkvæði en þessi tvö lög háðu hið svokallaða einvígi.
Hér má svo sjá úrlit frá undankeppnunum:
Fyrri undanúslit 17. febrúar – Úrslit símakosningar almennings
- Bíómynd – VÆB: 7.347 atkvæði
- Stingum af – ANITA: 6.514 atkvæði
- Sjá þig – Blankiflúr: 3.046 atkvæði
- Ró – Ceasetone: 1.344 atkvæði
- Fiðrildi – Sunny: 577 atkvæði
Það voru því lögin Bíómynd og Stingum af sem komust áfram í úrslit keppninnar. Seinni undanúslit 24. febrúar – Úrslit símakosningar almennings
- Vestrið Villt – Bashar Murad: 9.034 atkvæði
- Við förum hærra – Hera Björk: 8.552 atkvæði
- Um Allan Alheiminn – Sigga Ózk: 6.730 atkvæði
- Fljúga burt – MAIAA: 3.184 atkvæði
- Þjakaður af ást: 1053 atkvæði
Vestrið villt og Við förum hærra komust því beint í úrslitin en framleiðendur keppninnar hleyptu „Einu lagi enn“ í úrslitin og varð lagið Um Allan Alheiminn fyrir valinu.
Samkvæmt Rúnari er undirbúningur fyrir ferð íslenska hópsins til Malmö nú í fullum gangi en Hera Björk stígur á svið í fyrri undanúrslitum Eurovision þriðjudaginn 7. maí. Seinni undanúrslit fara svo fram fimmtudaginn 9. maí og úrslitakvöldið verður laugardaginn 11. maí. Allar keppnirnar verða sýndar í beinni útsendingu á RÚV.