- Auglýsing -
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt eftirfarandi tilkynningu á Facebook.
Lýst eftir ökumanni dökkblárar Skoda stationbifreiðar og vitnum af umferðaróhappi.
Síðdegis í gær, um kl. 18:30, lentu saman dökkblá bifreið af Skoda station gerð og maður á rafskútu við Suðurlandsbraut 46. Ökumaður rafskútunnar ók úr norðri yfir Suðurlandsbraut og yfir gönguþverun á aðrein sem liggur frá Faxafeni inn á Suðurlandsbraut.
Ökumaður Skoda bifreiðarinnar (kona um fertugt) ekur á hann og stoppar samstundir til kanna með ástand mannsins. Þau ræða saman og ökumaður rafskútunnar heldur að hann sé ómeiddur svo ökumennirnir skiptast ekki á neinum frekari upplýsingum og halda sína hvora leið. Eftir á kom í ljós að áverkar mannsins eru þó nokkrir heldur en talið var í upphafi, meðal annars hugsanlegt fótbrot.
Nú óskum við eftir að ökumaður Skodabifreiðarinnar sem var um 40 ára kvk, með barn í bílnum og ef vitni hafi orðið að slysinu gefi sig fram í síma 444-1000 eða sendi póst á [email protected]