- Auglýsing -
Karlmaður féll í Brúará við Miðfoss upp úr hádegi fyrr í dag. Björgunarsveitir, lögregla og slökkvilið reyndu að bjarga manninum án árangurs. Lögregla segir manninn hafa látist.
Þetta kemur fram í stöðufærslu Lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook. Þar kemur fram að þyrla Landhelgisgæslunna hafi fundið manninn eftir skamma leit. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.