Það var ýmislegt að gera hjá lögreglunni í dag í enda menningardagurinn mikli í Reykjavík.
Sex ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og/eða ávana- og fíkniefna. Þá var lögregla send á vettvang umferðaróhapps en ágreiningur var milli ökumanna.
Tilkynnt var um mann á gangstétt í einhverskonar æfingum með geislasverð og væri að skelfa gangandi vegfarendur. Lögregla fór á vettvang og ræddi við manninn. Ekki er vitað hvað unga Jedi-riddaranum gekk til en lofaði að finna æfingum sínum betri stað.
Tilkynnt var um vinnuslys en þar hafði maður skorið sig á hendi við að sníða til parket. Hann fluttur á slysa- og bráðadeild til aðhlynningar.
Lögreglan var send með forgangi að verslun þar sem starfsmenn höfðu mann í tökum eftir búðarþjófnað. Þjófurinn meinti hafði í atganginum náð að bíta starfsmennina til blóðs. Aðilinn í verulega annarlegu ástandi og vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann.
Tilkynnt var um þjófnað í verslun en þar hafði aðili tekið tvær úlpur í mátunarklefa, skilað síðan annarri og hlaupið á brott með hina. Málið í rannsókn.
Þá var tveimur mönnum vísað á brott af veitingastað þar sem þeir höfðu verið með uppsteyt.