- Auglýsing -
Maður sem velti bíl á Ólafsfjarðarvegi aðfaranótt sunnudags var útskrifaður af gjörgæslu. Hann var fluttur á bráðamóttöku sjúkrahússins á Akureyri eftir slysið. Bíllinn er ónýtur en maðurinn slapp furðulega vel og var ekki í lífshættu. Tilkynning um slysið barst um klukkan eitt að nóttu en töluverð umferð var um Ólafsfjarðarveg frá Dalvík þar sem hátíðin Fiskidagurinn mikli var haldin um helgina.