Nú standa yfir prófanir á íslensku appi sem nefnist EatUP. Hugmyndin að baki appinu er að „einfalda pöntunarferlið á take-away og bjóða þannig upp á ódýrari máltíðir,“ eins og einn þeirra sem að EatUP standa skrifar í færslu á Facebook.
Segir hann að notendur appsins geti valið á milli 30 rétta hjá hinum ýmsu veitingastöðum miðsvæðis í Reykjavík. Allar máltíðir muni kosta 1290 krónur og notendur ákveði tíma og maturinn verði tilbúinn til afgreiðslu þegar hann er sóttur.
Meira um verkefnið hér en áætlað er að appið verði komið í gagnið innan fáeinna vikna.