Miðvikudagur 30. október, 2024
5.1 C
Reykjavik

Mánagarðsbörnin orðin fimm á gjörgæslu – Rúmlega 40 börn hafa smitast

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Áfram bætist í hóp barna sem liggja á gjörgæslu vegna E.coli-sýkingar en þau eru nú orðin fimm talsins. Þá liggja fimm önnur börn inni á Barnaspítala Hringsins.

Smitið  kom upp á leikskólanum Mánagarði fyrir rúmri viku en rúmlega 40 börn en ekki nein börn utan leikskólans hafa smitast. Ennþá er verið að bíða eftir niðurstöðu úr sýnum frá starfsmönnum leikskólans. Líklegt þykir að smituð matvæli séu sökudólgurinn í málinu og þá sérstaklega nautahakk sem boðið var upp á í leikskólanum en niðurstaða úr sýnum sem tekin voru úr matvælunum eru væntanleg á næstu dögum.

Bakterían gengur ekki auðveldlega milli manna en hún smitast með saur í munn. Mögulegt er að þeir sem hafi aðstoðað börnin á salerni séu útsettir fyrir smit sem og fólk sem býr á sama heimili og börnin. Ekki hefur neinn utan leikskólans verið greindur með bakteríu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -