- Auglýsing -
Samkvæmt dagbók lögreglu virðist nóttin hafa farið rólega fram að mestu, fyrir utan að nokkuð mikið var um ölvunarakstur. Alls voru sex stöðvaðir vegna gruns um undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Enginn þeirra gistir fangageymslur og öllum þeirra var sleppt að lokinni sýnatöku. Einn þeirra reyndist án ökuréttinda.
Í umdæmdi lögreglustöðvar tvö, sem nær til Garðabæjar og Hafnafjarðar, var tilkynnt um mann sem var að reyna að komast inn í hús. Sá reyndist hafa farið húsavillt og engar skemmdir urðu af ruglingi mannsins.