MAST hefur stöðvað veiðar Hvals 8.
Matvælastofnun greinir frá því í tilkynningu að hún hafi stöðvað veiðar Hvals 8. Var það gert vegna alvarlegra brot á velferð dýra. Verða veiðar ekki leyfðar fyrr en úrbætur hafa verið gerðar og samþykktar af MAST og Fiskustofu
„Við eftirlit kom í ljós að fyrsta skot Hvals 8 þann 7. september hitti dýrið utan tilgreinds marksvæðis með þeim afleiðingum að dýrið drapst ekki strax. Við slík atvik ber veiðimönnum skv. nýrri reglugerð að skjóta dýrið án tafar aftur. Það var ekki gert fyrr en tæpum hálftíma síðar og drapst hvalurinn einhverjum mínútum eftir það. Slík töf telst brot á lögum um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum,“ segir í tilkynningu MAST.