Menntaskólinn við Hamrahlíð sigraði í gær Menntaskólann í Reykjavík með 32 stig gegn 24 sitgum í úrslitaviðureign Gettu Betur og er þetta í annað skipti sem MH vinnur keppnina.
Keppendur MR voru þau Áslaug Edda Kristjánsdóttir, Davíð Birgisson og Björn Diljan Hálfdánarson og sigurlið MH skipa þau Atli Ársælsson, Una Ragnarsdóttir og Hálfdan Árni Jónsson.
MH bætist í hóp þeirra skóla sem hafa sigrað Gettu Betur oftar en einu sinni en aðrir skólar sem hafa gert það eru Verzlunarskóli Íslands (2), Kvennaskólinn í Reykjavík (3), Menntaskólinn á Akureyri (3) og Menntaskólinn í Reykjavík (23). Spyrill í ár var Kristinn Óli Haraldsson og voru dómarar og spurningahöfundur þau Helga Margrét Höskuldsdóttir og Vilhjálmur Bragason.
Hægt er að horfa á einvígið hér.