Meradalsleið verður lokuð í dag til klukkan 13:00 vegna flutning tækja til að berjast við gróðurelda.
Lokun gossvæðsins gekk vel í gær að sögn lögreglu og ekki voru skráð nein óhöpp. Flestir geri sér grein fyrir að þurfa fylgja fyrirmælum lögreglu og sýni því skilning. Talið að rúmlega þrjú þúsund manns hafi lagt leið sína á gossvæðið í gær.
Slökkviliðið í Grindavík mun í dag fara í stóra aðgerð gegn góðureldunum sem geisa á gossvæðinu og hafa verið síðan eldgosið hófst. „Við erum að breyta um taktík. Við komum nú meira vatnsmagni upp eftir í trukkum,” sagði Einar Sveinn Jónsson, slökkviliðsstjóri í Grindavík, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það mun fjölga töluvert í liðinu, við erum með meira vatn og þá verður meira afl sett í þetta. Hver tankur rúmar um 8-10 þúsund lítra þannig að það er fljótt að muna um nokkrar ferðir.”