Rúmlega helmingur svarenda í könnun MMR segir viðskipti sín við skyndibitastaði og aðra veitingastaði hafa minnkað í kjölfar útbreiðslu COVID-19. Könnunin var gerð dagana 3. til 7. apríl. Þá sagði tæpur fjórðungur að matarkaup sín hafi aukist með útbreiðslu COVID-19.
55% sögðu viðskipti sín við veitingastaði (aðra en skyndibitastaði) hafi minnkað, 52% sögðu viðskipti við skyndibitastaði hafa minnkað.
Neysluvenjur í ýmsum vöruflokkunum voru skoðaðar í könnuninni en mestur mældist samdrátturinn milli mars og apríl í kaupum á mat á skyndibitastöðum sem dróst saman um 21 prósentustig – samdráttur sem bættist þá við þann 31% samdrátt sem mældist í mars.
Ef litið er til stjórnmálaskoðana svarenda má sjá að stuðningsfólk Framsóknarflokksins reyndist líklegast til að segja kaup sín á mat af skyndibitastöðum (66%) og öðrum veitingastöðum (69%) hafa minnkað á meðan stuðningsfólk Miðflokksins (13%) og Pírata (12%) var líklegast til að segja að kaup sín á mat af skyndibitastöðum hafa aukist .