Mánudagur 1. júlí, 2024
11.1 C
Reykjavik

Minningarorð: Anna Sigríður Grímsdóttir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þuríður Kristín Kristleifsdóttir, Guðmundur Þorlákur Bjarni Ólafsson og fjölskylda skrifuðu fallega minningargrein um Önnu Sigríði Grímsdóttur, sem lést á dögunum, 96 ára að aldri og birtu á fjölmiðlum í Vestmannaeyjum. Mannlíf fékk góðfúslegt leyfi til að birta minningargreinina sem lesa má hér fyrir neðan:

Anna okkar, ljúfa Anna, er látin, tæplega 96 ára að aldri. Hún bar ekki aldurinn með sér, var með allt á hreinu,  fylgdist vel með og alltaf með sitt fallega bros. Það kom okkur því mjög á óvart, sem segir mikið, þegar við fengum upphringingu um snögg veikindi hennar sem leiddu til andláts skömmu síðar. Fallegar og einlægar minningar koma upp í hugann á tímamótum sem þessum, minningar sem oft voru rifjaðar upp þegar við ræddum við Önnu. Seinasta heimsóknin okkar til hennar, tæpum tveimur dögum fyrir andlát hennar, er okkur dýrmæt sem og önnur samvera. Anna, ásamt látnum eiginmanni hennar Guðjóni Magnússyni, Gauja Manga, og fjölskylda, eru okkur mjög kær. Í gegnum tíðina hafa gleðistundirnar verið miklar, hvort heldur í sumarbústaðnum okkar sem við áttum saman forðum í Vaðnesi eða á öðrum stundum. Þau, Anna og Gauji voru einstök og það er með miklum söknuði sem við kveðjum nú Önnu. Elsku Anna nú hefur þú hitt hann Gauja þinn og alla hina, það hlýtur að ganga eitthvað á, Ljúfa Anna sungið og eitt eða tvö „Tigga Ligga“ tekið, það heyrist okkur. Með þessum fátæklegu orðum viljum við fjölskyldan kveðja Önnu, Önnu sem gaf okkur svo mikið. Megi góður Guð blessa minningu Önnu sem og annarra sem gengnir eru. Aðstandendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll.

Þuríður Kristín Kristleifsdóttir, Guðmundur Þorlákur Bjarni Ólafsson og fjölskylda.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -