- Auglýsing -
Mótmælunum sem Anahita og Elissa standa fyrir í hvalveiðibátunum er nú að ljúka.
Anahita og Elissa hafa ákveðið að koma niður úr möstrum hvalveiðibátana en þær hafa verið hlekkjaðar þar síðan snemma í gærmorgun. Þær sögðust ekki geta haldið lengur út.
Anahita var sú fyrri til að koma niður og fékk sér langþráðan vatnssopa.
Kveikt hefur verið á vélum Hvals 8 og 9.
Báðar eru þær komnar niður og hafa verið handteknar og færðar af svæðinu með lögreglubíl.
Fréttin verður uppfærð.