- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson sem allir þekkja sem Mugison verður næsti gestur í þættinum Sjóarinn sem sýndur verður næsta miðvikudag þar sem hann ræðir við Reyni Traustason um lífið til sjós og lands og síðast en ekki síst tónlistina.
Til taks í stúdíóinu reyndist forláta kassagítar sem áður var í eigu ömmu tæknimannsins og því þótti ekki úr vegi að henda í eitt lag og úr varð að Mugison flutti lagið „Hugsa Til Þín“ af nýútkominni plötu sinni sem ber heitið „É Dúdda Mía“ en platan er sú áttunda sem Mugison gefur út.