Þorbergur nokkur varð orðlaus þegar hann leit út í garð hjá sér í gærkvöldi og sá þar grunsamlega skepnu á ferli. Augljóst er á myndbandinu sem hann birti með færslu sinni í hópi hverfisbúa á Facebook að svona dýr hafði hann aldrei séð áður við heimili sitt:
„Hvað ógeð er þetta hér í Grafarvogi í kvöld fimmtudag. Hvítur minkur??“
Myndbandið hans Þorbergs má sjá hér neðan í fréttinni. Eins og búast mátti við hafa margir nágrannar hans blandað sér í umræðuna og óhætt er að segja að sitt sýnist hverjum. Sumir taka þessu ósköp rólega og benda á að líklega sé minkurinn kominn úr minkabúi úr Mosfellsdal á meðan aðrir eru óttaslegnir yfir komu minksins í Gragarvoginn.
Þorbjörgu virðist nokkuð brugðið. „Þokkalega stór þessi!,“ segir hún. Og Theódóru líst illa á blikuna. „Shit…eru minkar bara komnir í hverfið okkar…“ segir Theódóra.
Benedikta er hins vegar pollróleg. „ógeð? Saklaust dýr sem er bara að reyna að komast af í lífinu,“ segir Benedikta. Og Freyja virðist rólega líka og bendir á komu minka í önnur hverfi undanfarið. „Einn slikur var gómaður í búr hér í Mosó fyrir 2 vikum og mun fleiri sveitungar að kvarta yfir ad sjá hvíta minka á vappi. Þeir hvítu koma úr ræktunarbúi,“ segir hún.