Rafbílaeigendur geta hlaðið bíla sína frítt hjá N1 í Reykjanesbæ. Opnað hefur verið fyrir hraðhleðslu. Nóg er fyrir notendur að stinga bifreiðunum í samband og hlaða.
„Við viljum koma til móts við ábendingu Almannavarna um að fólk fari sparlega með rafmagn í íbúabyggð og hlaði rafbíla frekar í hraðhleðslum á svæðinu,“ segir Ýmir Örn Finnbogason framkvæmdastjóri N1 í tilkynningu frá félaginu.
Sex hraðhleðslusvæði á vegum N1 eru í Reykjanesbæ.
„Þannig er dregið úr álagi á kerfinu sem er mjög mikilvægt við þær aðstæður sem eru uppi og eru nógu krefjandi fyrir fjölskyldur á svæðinu. Til að einfalda þetta enn frekar fyrir notendur ákváðum við að það væri þeim að kostnaðarlausu að hlaða bílinn, svo ekki færi á milli mála að þetta væri aðgengilegt öllum.“
Tengdar fréttir:
Brimborg axlar samfélagslega ábyrgð – Rafbílaeigendur greiða heimataxta í hraðhleðslu