Knattspyrnukonan Nadía Atladóttir sem er nú orðin leikmaður Vals, kíkti í heimsókn í nýjasta þátt Íþróttavikunnar.
Þeir Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson sem hafa umsjón með hlaðvarpinu fengu Nadíu í heimsókn þar sem tónlistarmaðurinn umdeildi og afar vinsæli Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko, bar á góma – en Nadía og Patrik eru systkini.
„Það er búið að vera mjög gaman að fylgjast með honum; hann er náttúrulega ekkert eðlilega athyglissjúkur; hann er bara að gera vel – það eru allir voða hrifnir af honum,“ sagði Nadía og bætti þessu við:
„Hann fílar líka þegar fólk er ekki hrifið af honum og finnst það bara geðveikt.“
Greinilegt er að systkinin eru stútfull af hæfileikum og orku. Glæsileg.