Guðjón Einar Guðvarðarson hét maðurinn sem lést í umferðarslysinu sem átti sér stað á Vesturlandsvegi 16. janúar en það er mbl.is sem greinir frá þessu.
Guðjón var 71 árs gamall og lætur eftir konu og þrjú börn.
„Alvarlegt umferðarslys á Vesturlandsvegi var tilkynnt 112 neyðarlínu þann 16. janúar klukkan 09:48. Slysið átti sér stað á Vesturlandsvegi skammt frá gatnamótunum við Hvalfjarðarveg. Þar hafði fólksbifreið á suðurleið rekist utan í vöruflutningabifreið sem kom úr gagnstæðri átt og síðan á aðra vöruflutningabifreið sem kom þar á eftir. Ökumaður fólksbifreiðarinnar lést við áreskturinn og farþegi hans slasaðist en ökumenn vöruflutningabifreiðanna voru óslasaðir en voru fluttir til skoðunnar á sjúkrahúsið á Akranesi þar sem þeir síðan fengu áfallahjálp. Lögreglan á Vesturlandi áasamt sjúkra- og slökkviliði fóru á vettvang og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út sem flutti slasaðan farþega til Reykjavíkur. Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa komu á vettvang en rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar slysið,“ sagði í tilkynningu lögreglu um slysið.