NBA-stjörnurnar Ivica Zubac og Dario Saric lentu í slagsmálum eftir tapleik. Það getur stundum verið gott að fá útrás eftir tapleik segja einhverjir en Zubac og Saric gengu mögulega of langt eftir tapleik Króatíu gegn Grikklandi í gærmorgun en tapið varð til þess að Króatíu mun ekki spila á Ólympíuleikunum. Ekki liggur fyrir af hverju slagsmálin hófust en á myndbandi sem náðist af atvikinu má sjá Zubac í átökum við annan mann áður en öryggisverðir hlaupa til og grípa körfuboltamanninn. Þegar Saric sá hvað var að gerast stökk hann til að hjálpa Zubac en var hrint niður af öryggisverði og á einhverjum tímapunkti í átökunum tekur gestur skemmtistaðarins Saric hálstaki. Samkvæmt heimildum TMZ var lögreglan ekki kölluð til og ekki liggur fyrir hvort slagsmálin muni hafi áhrif á feril Saric og Zubac en þeir spila með Denver Nuggets og Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í Bandaríkjunum.