Um helgina vonast Mosfellingar að líf og fjör verði í bænum þegar hátíðin „Í túninu heima“ fer fram. Á vef sveitarfélagsins er fullyrt að um glæsilega dagskrá verði að ræða þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Á Twitter er hafin umræða um flytjendaval Mosfellsbæjar á tónleikum sem fram fara annað kvöld. Tónleikarnir bera heitið „Fössari í túninu heima“ og þar koma fram þeir Aron Can, ClubDub, BlazRoca, Daniil, Herra Keflavík, Blaffi og DJ Óli Geir.
Selma Sverris gerir uppstillinguna að umtalsefni í þræði á samfélagsmiðlinum. Augljóst er hvað henni finnst um flytjendavalið því hún segir:
„Mosó – þar sem karlarnir eru!“
Ísak nokkur tekur undir með Selmu og skilur ekkert í því hvers vegna ekkert hafi verið hugað að kynjahlutfallinu. „Og það er ekki eins og það vanti rapp/popp/rnb/hiphop söngkonur,“ segir hann.
Og undir þetta tekur Hrund og ljóst að hún hefur ýmislegt að athuga við uppstillingu Mosfellinga annað kvöld: „DJ Óli Geir? Er 2002?,“ spyr Hrund.