Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinn þann 27. apríl síðastliðinn. Að auki var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna, auk vaxta, í miskabætur sem og sakarkostnað uppá rúmlega 1,9 milljónir króna.
Á árunum 2016-2019 þegar stúlkan var ellefu til þrettán ára gömul fór maðurinn tvisvar til þrisvar sinnum í viku inn í herbergið hennar þegar hún svaf. Hann á hafa „staðið yfir rúmi stúlkunnar eða lagst upp í rúm til hennar, og ítrekað káfað á kynfærum, brjóstum og líkama hennar innanklæða og ítrekað fróað sjálfum sér á meðan, sett hönd hennar ítrekað á getnaðarlim sinn og látið hana fróa sér, í eitt skipti látið hana eiga við sig munnmök og í eitt skipti girt niður um hana buxur og nærbuxur,“ eins og segir í ákæru.
Barnahús tók skýrslu af stúlkunni og þar lýsir hún brotum stjúpföður síns og hvernig hann hafi reglulega komið inn í herbergi sitt um nætur og brotið á sér. Í máli hennar kom sérstaklega fram að stjúpfaðirinn hefði iðulega þvottapoka með sér þegar brotin áttu sér stað.
Varla vitað af tilhneigingu stjúpföður síns
Maðurinn lýsti yfir sakleysi sínu og sagðist alltaf kíkja reglulega inn í herbergi stúlkunnar til að gá hvort að hún væri sofnuð enda væri hún ein í herbergi og vildi sofa með lokaðar dyr. Þá setti hann stundum síma hennar í hleðslu þegar hún væri sofnuð ef hann tæki eftir því að það hefði gleymst auk þess sem hann vekti stúlkuna yfirleitt á morgnanna.
Í vitnisburði móður stúlkunnar kom fram að þegar hún og hinn ákærði stunduðu kynlíf þá fengi hann yfirleitt sáðlát í þvottapoka eða þvottastykki eða þá að hann fengi sáðlát á maga konunnar og þrifi síðan sæðið með þvottapokanum/stykkinu.
Í dómi kemur fram að framburður vitna og sálfræðinga styrki frásögn stúlkunnar og dómurinn telji hafið yfir skynsamlegan vafa að maðurinn hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Þannig hafi stúlkan varla vitað af tilhneigingu stjúpföður síns til að nota þvottapoka með þeim hætti sem áður hefur verið lýst.
Við ákvörðun refsingar var til þess litið að brot mannsins beindust gegn stjúpdóttur hans og eru alvarleg en með þeim brást hann trúnaðarskyldum sínum gagnvart henni.