Nóttin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt dagbók hennar, sem er óvenju lítið ítarleg hjá henni í þetta skiptið.
Alls voru sjö ökumenn stöðvaðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Öllum var sleppt eftir sýnatöku. Þá segir lögreglan að mikið hafi verið um tilkynningar sem tengdust ölvun, slagsmálum og hávaða í miðbæ Reykjavíkur, án þess að fara nánar út í það.
Lögreglustöð 3, sem þjónustar Kópavog og Breiðholtið, barst tilkynning um yfirstandandi innbrot í verslun klukkan 02:37 í nótt. Um var að ræða nokkra aðila sem fóru af vettvangi á bifreið. Voru þeir allir handteknir vegna málsins og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar þess.
Þá barst lögreglustöð 4, sem þjónustar í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi, tilkynningu um bifreið sem endaði utan vegar. Ekki kom fram í dagbókarfærslu lögreglunnar hvar nákvæmlega þetta gerðist. Lögreglan var send á vettvang að kanna málið. Ekki komu frekari upplýsingar fram hjá lögreglunni um málið.