Það styttist óðum í að nýja sjónvarpsþáttasería Baltasars Kormáks fari í sýningu en þátturinn, sem nefnist King and Conqueror, hefur göngu sína á næsta ári á CBS og BBC.
Sögusvið þáttarins er Bretland á 11. öld og sýnir baráttu Vilhjálms 1. og Haraldar 2. á þeim tíma. Nikolaj Coster-Waldau er án efa þekktasta leikarinn í þáttunum en hann fer með hlutverk Vilhjálms en margir muna eftir Coster-Waldau í hlutverki Jamie Lannister í Game of Thrones. Þættirnir voru nánast að öllu leyti teknir upp á Íslandi. Baltasar framleiðir þættina og leikstýrir seríunni að hluta til.
Nú hafa verið í fyrsta sinn birtar myndir úr þáttunum og hægt er að sjá þær hér fyrir neðan