Þau sem hafa fengið örvunarskammt bóluefnis gegn Covid-19 eru undanþegnir hefðbundinni sóttkví. Reglugerðarbreytingin tók gildi í gær og getur haft áhrif á lengd sóttkvíar hjá einstaklingum sem voru skipaðir í hana fyrir gildistöku.
Í staðinn gilda sérreglur í fimm daga um viðkomandi einstaklinga sem gerir þeim kleift að stunda vinnu og mæta í skóla. Allir sem fara í sóttkví geta stytt hana með neikvæðri niðurstöðu PCR prófi á fimmta degi.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra undirritaði reglugerðina en hún byggir á tilmælum frá sóttvarnalækni.
Breyttar reglur fela í sér að hlutaðeigandi er:
- heimilt að sækja vinnu eða skóla og sækja sér nauðsynlega þjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu, fara í matvöruverslanir og lyfjabúðir og nota almenningssamgöngur,
- óheimilt að fara á mannamót eða staði þar sem fleiri en 20 koma saman, nema í því samhengi sem nefnt er hér að ofan,
- skylt að nota grímu í umgengni við alla nema þá sem teljast í nánum tengslum og gildir grímuskyldan einnig þótt hægt sé að halda tveggja metra fjarlægð,
- óheimilt að heimsækja heilbrigðisstofnanir, þar með talin hjúkrunarheimili, nema með sérstöku leyfi viðkomandi stofnunar,
- skylt að forðast umgengni við einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af Covid-19.
Reglurnar gilda um:
- einstaklinga sem eru þríbólusettir og fengu síðustu sprautuna meira en 14 dögum áður en viðkomandi er útsettur fyrir smiti
- einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu Covid-smiti og eru jafnframt tvíbólusettir, að því gefnu að þeir hafi fengið síðari sprautuna meira en 14 dögum áður en þeir voru útsettir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir í pistli sem hann birti í dag að tillagan sem heilbrigðisráðherra samþykkti sé byggð á nýlegri rannsókn í New England Journal of Medicine sem sýni að tvíbólusettir séu bæði ólíklegri til að taka smit og smita aðra.