Áhöfnin á varðskipinu Þór heldur áfram leit í dag að skipverjanum sem féll útbyrðis á laugardag út fyrir Garðskaga. Neðansjávari bætist við leitina.
Sagt er frá því á vef Gæslunnar að neðansjávarfari frá Teledyne Gavia verði notaður við leitarnar í dag á svæðinu þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð. Er neðansjávarfarið útbúið sérstakri hliðarhljóðsjá auk myndavélar sem nýtist við athugun sjávarbotnsins.
Í morgun fór sérfræðingur frá Teledyne Gavia um borð í Þór auk sérfræðinga frá sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslunnar til að aðstoða við leitina. Þá verður þyrla Gæslunnar aukreitis nýtt til leitar í dag.
Meðfylgjandi eru myndir frá varðskipinu Þór sem teknar voru í gær ásamt myndum af neðansjávarfarinu.