„Að öllu óbreyttu verður skólastarf í öllum leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum á morgun mánudaginn 12. febrúar. Þetta á einnig við um starfsemi frístundaheimila. Þess má geta að skipulagt íþróttastarf hjá börnum og ungmennum fellur niður,“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum.
Upphitun hefur gengið vel
Fram kemur að vel hefur gengið að halda hita á skólabyggingum. Starfsfólk sveitarfélaganna og aðgerðastjórn Suðurnesja hafa nýtt helgina til að koma fyrir hitablásurum í allar byggingar. Reglulega er staðan metin og upplýsingar verða sendar frá skólastjórnendum til foreldra/forráðamanna ef gera þarf breytingar og aðlaga skólastarf að þeim.