Átta manns gistu fangageymslur í vegna ýmissa mála. Tveir þeirra voru handteknir vegna skemmdarverka. Þegar átti að færa annan þeirra í fangaklefa réðst viðkomandi á lögreglumenn og fangavörð með hnefahöggum. Hann var yfirbugaður og læstur inni. Ofbeldisseggurinn mun svara til saka þegar nýr dagur rís.
Afskipti voru höfð af búðaþjófi vegna þjófnaðar og fjársvika í matvöruverslun. Þá var óvelkomnum vísað út úr verslun.
Innbrotsþjófur braut sér leið inn í fyrirtæki og stal þaðan fjármunum.
Einn maður var handtekinn og læstur inni vegna gruns um líkamsárás á skemmtistað.
Þrír eftirlýstir menn voru handteknir vegna rannsóknar á húsbroti. Þeir voru allir læstir inni.
Réttindalausir ökumenn voru staðnir að því að aka í leyfisleysi.
Óheiðarlegur ökumaður ók að aðra bifreið en stakk svo af. Upplýsingar liggja fyrir um bifreiðina sem fór af vettvangi og mun ökumaðurinn þurfa að svara fyrir gerðir sínar.
Lögregla gerði athugasemd við dökkar filmur í fremri hliðarrúðu bifreiðar. Slíkt er bannað enda í andstöðu við reglugerð um gerð og búnað ökutækja.
Brotist var inn í skóla. Óljóst um lyktir þess máls.
Meintur dópssali var handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar á vörslu fíkniefna.