Greint var frá ýmsu í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag
Tilkynnt var um innbrot og þjófnað úr bifreið og var verðmætum stolið. Þá var tilkynnt um að rafskútu hafi verið ekið á gangandi vegfaranda og gerði lögregluna skútuna upptæka til að rannsaka hvort henni hafi verið breytt ólöglega. Einnig var tilkynnt ökumann sem keyrði á 111 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 50 km/klst. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum á staðnum og blóðsýni tekið.
Einnig var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna og reyndist ökumaðurinn og farþegi í bílnum grunuð um þjófnað í öðru máli.