Ofstopamanni var vísað út af bar í miðborginni vegna yfirgangs. Hann róaðist við afskipti lögreglu og slapp við handtöku.
Þrír menn voru til vandræða í mathöll. Starfsmenn fengu sig fullsadda og hringdu á lögreglu. Dólgarnir voru farnir þegar lögregla kom á vettvang.
Viðskiptavinur verslunar var illa áttaður í verslun. Hann hafði náð áttum og var farinn þegar lögregla kom á vettvang.
Barn varð staðið að þjófnað í matvöruverslun. Málið var afgreitt á staðnum og forráðamönnum tilkynnt um atvik.
Ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var sviptur ökuréttindum á staðnum.
Ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann reyndi að villa á sér heimildir og framvísaði fölsuðu ökuskírteini. Hann reyndist við skoðun vera réttindalaus eftir sviptingu.
Meintur ofbeldismaður var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar á heimilisofbeldi.
>Hafnarfjarðarlögregla handtók mann sem var á stolnum bíl. Hann hvílir nú í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Maður sem sýndi neyslutengda hefgðun var handtekinn og hann vistaður í fangageymslu.
Eldur varð laus í bifreið í umdæmi Kópavogslögreglu. Á sömu slóðum var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Líkamsárás var framin í heimahúsi. Gerandinn vistaður í fangageymslu.
Þrjú umferðaróhöpp urðu í umdæmi Mosfellsbæjarlögreglu. Í einu þeirra var töluverð vettvangsvinna og götulokanir. Bifreiðarnar voru óökufærar. Meiðsli ökumanna virtust vera minniháttar en tveimur ekið á bráðamóttöku Landspítala til aðhlynningar.