Ekið var á kú í Hörgárdal við Jónasarlund á Þjóðvegi eitt í gær. Lögreglan á Akureyri lýsir nú eftir ökumanninum sem ók af vettvangi eftir slysið sem átti sér stað um klukkan 15:30 í gær. Auk þess er óskað eftir vitnum að atvikinu en bílinn var á suðurleið, hvítur að lit.
„Ökumaður bifreiðarinnar er hvattur til að gefa sig fram eða setja sig í samband við lögregluna á Norðurlandi eystra í gegnum Neyðarlínuna, 112.
Þá eru þeir sem telja sig hafa upplýsingar um ákeyrsluna, bifreiðina eða ökumanninn beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri með sama hætti,“ segir í Facebook-færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.