Rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt dagbók hennar.
Leigubílstjóri lenti í vandræðum með farþega í hverfi 104 í nótt en neitaði hann að greiða fyrir farið. Þegar lögreglan kom á vettvang öðlaðist sá sótölvaði skyndilega manndóm og greiddi fyrir farið og fór heim til sín í kjölfarið.
Lögreglu barst tilkynning rétt fyrir tíu í gærkvöldi vegna árekstur á Reykjanesbraut við álverið. Hafði þá bifreið verið ekið á aðra bifreið sem við höggið snérist á akbrautinni. Sá sem olli tjóninu stoppaði í vegkantinum í stuttu stund áður en hann flúði af vettvangi. Í hinum bílnum voru hjón með tvö börn en hjónin voru með lítilsháttar áverka eftir áreksturinn og ætluðu sjálf að leita aðstoðar á sjúkrastofnunar. Bíll þeirra var í ökuhæfu ástandi eftir tjónið.
Úr Grafarholti barst tilkynning um innbrot og þjófnaði í einbýlishúsi. Var þá búið að fara inn um glugga og róta í skúffum og skápum. Ekki var vitað hverju var stolið.
Þá barst tilkynnning um ökumann bifreiðar sem ekið hafði í snjóskafl á Breiðholtsbraut og sat hann þar pikkfastur. Handtók lögreglan ökumanninn vegna gruns um ölvun við akstur. Var hann að lokinni sýnatöku vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu.